Ljós, myndavél, bílnum lagt og aksjón!
Ímyndaðu þér að það sé ein vika til jóla og allar verslanir eru stútfullar af fólki. Að þurfa að standa í röð við stöðumælinn er ekki eitthvað sem þú þarft á að halda. Hvað ef greiðsla fyrir bílastæðið myndi byrja sjálfkrafa? Væri það ekki næs?
Keyrðu inn, leggðu bílnum og keyrðu út
Keyrðu inn
Leggðu ljúflega í besta stæðið í bílastæðahúsinu. Ef þú hefur virkjað Sjálfvirka myndavélaskráningu "Myndavélabílastæðakerfi" færðu tilkynningu þegar skráning hefst.
Sinntu þínum erindum
Njóttu tímans í verslunarmiðstöðinni, útréttaðu eða kláraðu kynninguna með stæl. Bílastæðamálin eru í öruggum höndum.
Keyrðu út
Þú ferð einfaldlega að bílnum og keyrir út þegar þér hentar. Skráningin stöðvast sjálfkrafa þegar þú keyrir út.
Svona virkjarðu það
Fáðu þér appið
Sæktu það og skráðu þig hjá EasyPark. Það tekur bara nokkrar sekúndur.
Farðu í valmyndina í appinu
Ýttu á „Myndavélabílastæðakerfi“, og þú færð frekari upplýsingar.
Veldu bílinn þinn
Veldu bílinn sem þú vilt virkja af listanum yfir skráða bíla. Komið! Nú er allt tilbúið fyrir hnökralausa bílastæðaskráningu.
Hvernig virkar þetta eiginlega?
Hellum okkur í ANPR tæknina
Þér gæti þótt forvitnilegt að vita hvernig bílastæðahús vita hvenær eigi að setja skráningu af stað og stöðva hana. Bílastæðahús með sjálfvirka bílnúmeragreiningu, sem á ensku kallast Automatic Number Plate Recognition (eða ANPR) nota myndavélar til að skrá ökutæki við hliðin. Þetta lætur kerfið okkar vita að það eigi að setja skráningu af stað eða stöðva hana. En auðvitað bara ef þú hefur virkjað þessa þjónustu! Ertu með fleiri spurningar? Skoðaðu hjálparsíðuna okkar.
Hvar get ég lagt?
Á bílastæðum
Á götunni - sérðu ekki skiltin? Þú getur lagt með EasyPark á öllum svæðum sem eru í boði á korti appsins.