Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að sjá um bílastæðaútgjöldin
Leyfðu okkur að segja þér hvernig. Sem stjórnandi geturðu notað EasyPark sjálfsafgreiðslugáttina til að stjórna notendum, fara yfir kostnað, fá mánaðarlega reikninga og stjórna bílastæðaheimildum með nokkrum smellum. Með síma-appinu getur starfsfólkið þitt séð um bílastæðamálin sín með nokkrum smellum. Þetta er í alvöru svona auðvelt.
Tryggðu skilvirkni og fáðu stjórn á bílastæðakostnaðinum
Með fyrirtækjaþjónustu EasyPark breytist stjórnsýslan á bílastæðaútgjöldunum í auðveldasta og fljótlegasta verkefni dagsins. Í sjálfsafgreiðslugáttinni getur þú:
Séð allan kostnað á einum reikningi
Skipt kostnaði eftir kostnaðarstað eða verkefni
Stillt takmarkanir fyrir tíma eða ökutæki
Skoðað greiðslu- og bílastæðasögu
Bætt við, fjarlægt og stjórnað notendum
Valið greiðslumáta
Segðu bless við bílastæðaútgjöld starfsfólksins og taktu auðveldum bílastæðamálum fagnandi
Daglegt líf starfsfólksins getur einnig orðið einfaldara. Með fyrirtækjaþjónustu EasyPark sparar það tíma og getur auðveldlega lagt bílnum bæði hér á landi og erlendis. Það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af bílastæðakvittunum eða útgjöldum lengur.
Finndu stæði nálægt áfangastað
Byrjaðu og stöðvaðu skráningu í stæði á auðveldan hátt
Framlengdu skráningartímann hvar sem þú ert
Skiptu einka- og fyrirtækjakostnaði
Skrifaðu athugasemdir við skráningar
Leggðu í götustæði og í bílastæðahúsum
Fyrirtækjapakkar og verð
Hvort sem þú og samstarfsfélagarnir notið bílastæði oft eða bara endrum og sinnum, hvort sem þú ert einyrki eða hluti af stóru teymi, þá höfum við pakka sem hentar þínum þörfum. Veldu á milli Business Pro, Business Premium, eða fáðu sérsniðið tilboð frá okkur.
Business Pro
Ef þú og samstarfsfélagar þínir notið bílastæði sjaldnar en fimm sinnum í mánuði, mælum við með Business Pro. Þú greiðir EasyPark þjónustugjald ofan á bílastæðagjaldið þegar þú leggur bílnum, og ekkert mánaðarlegt áskriftargjald.
Business Premium
Fáðu aðgang að öllum grunn fyrirtækjaeiginleikunum. Þú borgar mánaðarlegt áskriftargjald og ekkert þjónustugjald ofan á bílastæðakostnaðinn. Ef þú og samstarfsfélagarnir notið bílastæði oftar en fimm sinnum í mánuði, mælum við með Business Premium.
Sérsniðið tilboð
Fáðu aðgang að grunn fyrirtækjaeiginleikum og viðbótum, út frá því sem hentar þér best. Blandaðu ýmsum pökkum og valkostum saman til að uppfylla þarfir þínar og samstarfsfólksins. Tilvalið fyrir miðlungsstór og stór fyrirtæki.
Hefur þú einhverjar spurningar?
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt vita hvernig á að byrja - skoðaðu algengar spurningar okkar hér að neðan eða hafðu samband við okkur! Við erum til taks mánudaga til föstudaga til að teygja út spurningarmerkin þín.
Um sjálfsafgreiðslugáttina
Um appið
Um EasyPark Business pakka
Um áskrift og uppsögn
Um innheimtu og greiðslumáta
Kynntu þér þjónustu okkar
Skiptu úr einkareikningi yfir í viðskiptareikning
Aðskildu vinnu þína og einkabílastæði með einum banka.
Byrjaðu með EasyPark Business
Frá skráningu í bílastæði á nokkrum mínútum með EasyPark Business!
Hafðu samband
Ertu með spurningar eða langar að vita hvaða skref á að taka næst? Hafðu samband! Hringdu í okkur í (+354) 546 9612 eða fylltu út upplýsingarnar þínar og starfsmaður okkar mun hafa samband við þig um leið og hann getur. Ef þú ert nú þegar fyrirtækja viðskiptavinur og ert með spurningu skaltu skoða aðstoðarsvæðið okkar.