guest parking easypark

Áreynslulausar skráningar í stæði fyrir gestina þína með EasyPark Business Guest Parking

Bættu upplifun gesta þinna með VIP-bílastæðum, stjórnaðu bílastæðaskráningum þeirra á skilvirkan hátt og sparaðu þeim dýrmætan tíma.

Áreynslulaus umsýsla fyrir hnökralaus gestabílastæði

Skráning í bílastæði getur haft mikil áhrif á upplifun viðskiptavina af fyrirtækinu þínu. Þegar það  er vesen fyrir viðskiptavini eða gesti að finna og borga fyrir bílastæði, getur það haft neikvæð áhrif á upplifun þeirra af þjónustu þíns fyrirtækis. Með EasyPark Business Guest Parking getur þú auðveldlega stjórnað skráningum í bílastæði fyrir eitt eða fleiri ökutæki gesta þinna, beint frá skrifborðinu þínu, án þess að þurfa að setja upp EasyPark appið eða díla við vesen með greiðsluvélar á götunum og þannig minnkað hættuna á bílastæðasektum.

Allar skráningar í bílastæði eru reikningsfærðar mánaðarlega, án takmarkana á fjölda skráninga. Þú greiðir aðeins fyrir þann tíma sem er notaður og getur stillt tímalengd skráninganna eftir þörfum. Með EasyPark Guest Parking tryggir þú hnökralausa og ánægjulega upplifun allra þeirra sem heimsækja þitt fyrirtæki.

EasyPark Guest Parking Solutions

EasyPark Business Guest Parking býður þér:

customer care

Frábæra upplifun fyrir gesti

Engin þörf á EasyPark appinu. Umsjónarmenn stýra skráningunum,hefja eða skipuleggja tíma þeirra eftir þörfum, frá skrifborðinu sínu og tryggja þannig hnökralausa heimsókn fyrir alla.

Self service

Auðvelda umsýslu

Sjálfsafgreiðsluvefur EasyPark Business einfaldar umsýslu skráninga fyrir einn eða hundruð gesta skráninga og útrýmir þannig handvirkum skráningum og skjalavinnu.

Invoice

Einfalda innheimtu

Sameinar allan kostnað í einn mánaðarlega reikning sem gerir umsýslu bílastæðakostnaðar að einfaldasta og fljótlegasta verkefni dagsins.

icon

Lágmarkaðar líkur á sektum

Lágmarkaðar líkur á sektum

Umsjónarmenn geta auðveldlega stillt tíma bílastæðaskráninga jafnóðum, sem verður til þess að gestir borga aðeins fyrir þann tíma sem notaður er, og tryggir sanngjarna og skilvirka bílastæða upplifun.

Coverage

3,700+

cities in 20+ countries

B2B

100 000+

EasyPark Business customers

On offstreet

Best garage and street coverage in Europe

guest parking easypark

Fáðu sem mest út úr EasyPark Business Guest Parking:

Guest Parking getur bætt starfsemi þína og stutt við grunn starfsemi fyrirtækis þíns.

Smásala

  • Tryggðu samkeppnisforskot með því að bjóða viðskiptavinum upp á aukna þjónustu.

  • Auktu virði þegar viðskiptavinir dvelja lengur án þess að hafa áhyggjur af að finna og greiða fyrir bílastæði. 

  • Byggðu upp hollustu og dekraðu við viðskiptavini þína.

Bílaleigur

  • Bættu við þægindum fyrir viðskiptavini þína með því að útrýma vandræðum með bílastæði og auktu þannig hollustu þeirra.

  • Sparaðu tíma með því að straumlínulaga umsýslu og skipuleggja skráningar í stæði fyrirfram.

  • Sparaðu peninga sem áður fóru í sektir og ónýttan bílastæðatíma.

Hótel

  • Auktu ánægju gesta með VIP-upplifuninni sem fyrirfram skipulagðar skráningar í bílastæði veita.

  • Styrktu vörumerkið með því að bjóða upp á bílastæðaþjónustu.

  • Veittu þægindi og hraða við innritun, og tryggðu hugarró og öryggi með því að stýra skráningum í bílastæði.

Svona virkar EasyPark Business Guest Parking

1
Self service

Að byrja skráningu í stæði

  • Skráðu þig inn á sjálfsafgreiðsluvef EasyPark Business, sláðu inn svæðiskóðann fyrir bílastæðið og stilltu hann sem sjálfgefinn ef hann er oft notaður.

  • Ákveddu tímann fyrir skráninguna strax eða skipuleggðu hann fram í tímann, með möguleikanum á að breyta honum síðar.

2
icon

Veldu ökutæki

  • Sláðu inn stakt bílnúmer eða veldu úr greiðsluhópnum þínum.

  • Staðfestu eða breyttu greiðsluhópnum eftir þörfum.

3
icon

Að lokum

  • Bættu við athugasemd (valfrjálst).

  • Skoðaðu samantektina til að staðfesta upplýsingar og ýttu að lokum á “Hefja Skráningu”.

Ertu með einhverjar spurningar?

Um EasyPark Business Guest Parking

Um sjálfsafgreiðslugáttina

Um EasyPark Business pakka

Um áskrift og uppsögn

Um innheimtu og greiðslumáta

easypark parking app

Uppgötvaðu fleiri möguleika fyrir fyrirtækið þitt

Hvort sem þú ert sjálfstætt starfandi, rekur lítið fyrirtæki eða ert hluti af stærra fyrirtæki, við erum með pakka sem þú getur valið úr, eða þá að við sérsnýðum tilboð að þínum og starfsmanna þinna þörfum. Með þessum hætti færð þú sem mest út úr þjónustu okkar.

Hafðu samband

Ertu með spurningar eða langar að vita hvaða skref á að taka næst? Hafðu samband! Hringdu í okkur í (+354) 546 9612 eða fylltu út upplýsingarnar þínar og starfsmaður okkar mun hafa samband við þig um leið og hann getur. Ef þú ert nú þegar fyrirtækja viðskiptavinur og ert með spurningu skaltu skoða aðstoðarsvæðið okkar.

contact us