Bættu bílastæðaupplifun gestanna þinna með EasyPark CamAccess
Gætir þú hugsað þér hnökralaust flæði gesta í bílastæðahúsinu þínu? Það gera fleiri. Kannski hefurðu tekið skref í rétta átt og komið fyrir myndavél við inn- og útganginn, en hér er næsta skrefið: Sjálfvirk myndavélaskráning eða EasyPark CamAccess þjónustan frá EasyPark. Nú hefst og stöðvast skráning í stæði sjálfkrafa hjá þeim ökumönnum sem hafa virkjað EasyPark CamAccess – sem losar þig við biðraðir, tafir og pirring.
Bílastæðavandamál eru til að leysa þau
Svona umbreytir EasyPark CamAccess þjónustan bílastæðahúsinu þínu
Ertu að glíma við bílabiðraðir við innganginn, flókna meðhöndlun reiðufjár og lélega nýtni bílastæða? Þetta eru algengustu vandamálin sem við höfum greint í samstarfi okkar við fleiri en 600 rekstraraðila bílastæða í Evrópu. En nú langar okkur að kynna þig fyrir EasyPark CamAccess þjónustunni. Ef þú ert meðal þeirra fjölmargra sem ert þegar með ANPR myndavélar uppsettar, þá býður þessi þjónusta EasyPark notendum upp á hnökralausa upplifun í bílastæðahúsum. Myndavélarnar þínar taka mynd af bílnúmerum og EasyPark notendur hefja og stöðva skráningu í stæði sjálfkrafa með þjónustunni okkar, og losa þig þannig endanlega við bílastæðavesenið. Með því að bjóða upp á framúrskarandi upplifun í bílastæðahúsinu þínu geta ökumenn í leit að þægindum hætt að aka í hringi á götum úti, sem minnkar umferðarteppur og nýtir stæðin þín betur.
Engir töfrar, bara snjöll tækni
Og svona virkar þetta
Til að bjóða upp á þessa þjónustu þarftu að setja upp ANPR myndavélar (e. Automatic Number Plate Recognition). Þessar myndavélar eru staðsettar við hliðin. Þegar ökumenn keyra inn taka þær mynd af ökutækinu svo lítið beri á og senda merki í kerfið okkar. Merkið gefur vísbendingu um að setja eigi af stað eða stöðva skráningu ökumannsins. Í hnotskurn: ökumenn þurfa ekki að hugsa um hvort þeir þurfi að hefja eða stöðva skráningu – það gerist sjálfkrafa. Kerfið sýnir einnig laus stæði þegar notendur eru að leita, sem er andstætt því þegar notendur leita í blindni að götustæði, og nær til þúsunda ökumanna þegar það skiptir mestu máli. Og já, þetta virkar aðeins þegar ökumenn velja að virkja þessa þjónustu. Við þvingum engan til að þiggja sveigjanleika.
Áreynslulaus skráning í bílastæði
EasyPark CamAccess
Fyrir borgir og rekstraraðila bílastæða sem vilja skilvirkni er það það sem aðgangur að EasyPark CamAccess veitir og rúmlega það. Það auðveldar ekki aðeins ökumönnum lífið heldur betrumbætir einnig umferðarflæðið bæði inn og út úr bílastæðahúsunum þínum.
Hnökralaus samþætting: Samþættist mjúklega við fyrirliggjandi kerfi, sem eflir nýsköpun án umróts
Betra umferðarflæði: Straumlínulagaður og hraður aðgangur ökumanna að bílastæðahúsum
Sveigjanleiki og stjórn: Ökumenn geta virkjað þjónustuna þegar þeir vilja, sem gerir þeim mögulegt að stjórna bílastæðaupplifun sinni
Lágmarksáhætta: Minnkaðu áhættuna sem fylgir reiðufjárgreiðslum
Sparar kostnað: Minnkaðu viðhaldskostnað stöðumælavéla
Spjöllum saman
Ertu tilbúinn að gera borgina þína lífvænlegri? Gott að heyra. Fylltu eyðublaðið út og við munum hafa samband við þig eins fljótt og við getum. ATH! Fyrir stuðningsmál, smelltu hér.
Skoðaðu meira
EasyPark Insights
Fáðu nákvæm gögn, greiningar og ráðgjafaþjónustu sem veita þér framkvæmanlega innsýn. Öðlastu sjálfstraust þegar þú gerir breytingar eða innleiðir bílastæðareglur.
EasyPark appið
Vinsæla smáforritið sem ökumenn nota til að finna bílastæði. Það hámarkar tekjurnar þínar þar sem það fjarlægir kostnaðinn við að meðhöndla reiðufé og viðhalda stöðumælavélum.
EasyPark SmartHUB
Þar sem allt á upphaf sitt. Grunnurinn að stafvæðingu bílastæðaframboðs, sem gerir uppsetningu sveigjanlega og framkvæmdaferlið skilvirkara.